Ferill 355. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 366  —  355. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um starfsemi ÁTVR.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


     1.      Hvert er verðmæti þeirra eigna ríkisins sem tengjast sölu áfengis í verslunum ÁTVR, svo sem fasteigna undir verslanir eða lager? Óskað er eftir sundurliðun eftir eignum fyrir árin 2019–2023.
     2.      Hverjar eru skuldbindingar ríkisins vegna leigu á húsnæði undir starfsemi ÁTVR? Óskað er eftir sundurliðun eftir eignum fyrir árin 2019–2023.
     3.      Hver er a) flutningskostnaður, b) markaðskostnaður, c) launakostnaður ÁTVR? Óskað er eftir sundurliðun fyrir árin 2019–2023.


Skriflegt svar óskast.